133. löggjafarþing — 16. fundur, 19. okt. 2006.
rannsókn kjörbréfs.
Hæstv. forseti. Kjörbréfanefnd kom saman í gær og fór yfir kjörbréf Eiríks Jónssonar, 3. varaþingmanns. Samfylkingarinnar í Norðvest., sem landskjörstjórn gaf út 17. október sl. Kjörbréfanefnd leggur einróma til að kjörbréf Eiríks Jónssonar verði samþykkt.