133. löggjafarþing — 26. fundur,  14. nóv. 2006.

tilkynning um dagskrá.

[13:33]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Að loknum atkvæðagreiðslum um sex fyrstu dagskrármálin fer fram umræða utan dagskrár um álversáform í Þorlákshöfn. Málshefjandi er hv. þm. Álfheiður Ingadóttir. Hæstv. iðnaðarráðherra, Jón Sigurðsson, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.