varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá 5. þm. Reykv. n. Helga Hjörvar, dagsett í dag, og hljóðar svo:
„Þar sem ég verð í fæðingarorlofi næstu tvær vikur, sbr. 12. gr. laga um þingfararkaup og þingfararkostnað, nr. 88/1995, með síðari breytingum, og sæki ekki þingfundi óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Ellert Schram, fyrrverandi ritstjóri, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“
Ellert Schram hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.