133. löggjafarþing — 61. fundur, 29. jan. 2007.
vatnsréttindi vegna Búrfellsvirkjunar.
415. mál
Forseti. Ég vil gjarnan að það komi fram að ég tel að þegar hæstv. forsætisráðherra hagar sér með þeim hætti að svara ekki í andsvörum þeim spurningum sem til hans er beint, þá tel ég það vera dónaskap, ekki aðeins við þann sem hér stendur heldur við þingið allt.