133. löggjafarþing — 74. fundur,  20. feb. 2007.

stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða og Rafmagnsveitur ríkisins.

570. mál
[13:58]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S) (andsvar):

Frú forseti. Mér þykir auðvitað leiðinlegt að valda hv. þingmanni vonbrigðum og vera ekki eins gamansamur og hann vildi að ég væri, (Gripið fram í.) saklaus, segir hann. Hins vegar tel ég mig vera saklausan af því að hafa tekið þátt í einhverri ákvörðun um að einkavæða Landsvirkjun á árinu 2008, ég kannast ekki við að sú ákvörðun hafi nokkru sinni verið tekin né lagt til að hún yrði tekin.