133. löggjafarþing — 78. fundur, 26. feb. 2007.
Verðlagsstofa skiptaverðs o.fl.
644. mál
Áður en hv. 2. þm. Norðvest. veitir andsvar vill forseti taka fram að hann á von á að málefni stjórnarskrárnefndar komi til umræðu í þinginu undir þeim dagskrárlið sem heitir stjórnarskrá Íslands og að við höfum þá tækifæri til að ræða mál stjórnarskrárnefndar á Alþingi og sýna stjórnarskránni þá virðingu að ræða hana undir réttum dagskrárlið.