133. löggjafarþing — 83. fundur, 1. mars 2007.
yfirlýsing gegn stuðningi við innrásina í Írak.
13. mál
Hæstv. forseti. Hv. þingmaður hefur önnur orð um þennan lista en ég hafði. Ég lagði fyrst og fremst áherslu á að hann hefur ekkert lögformlegt gildi eða vægi hér á landi. Við erum sjálfstætt ríki og hvernig svo sem Hvíta húsið kemur fyrir lista um fréttatilkynningar sínar og varðveitir þær, kannski í mörg ár eins og ráðuneytin á Íslandi gera, breytir engu um það. Þessum lista er best svarað með pólitískum yfirlýsingum stjórnmálamanna eins og ég hef gert.