135. löggjafarþing — 18. fundur, 5. nóv. 2007.
notkun raflagna og raffanga á Keflavíkurflugvelli.
65. mál
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður sagði í andsvari sínu að það væri hagsmunamál að hraða málinu í gegn, hann sagði í annarri setningunni að það ætti að afgreiða það á sex vikum en í hinni setningunni að rétt væri að málið dagaði uppi. Ég held að ekki sé miklu við þetta að bæta.