136. löggjafarþing — 1. fundur, 1. okt. 2008.
mannabreytingar í nefndum.
Forseta hefur borist eftirfarandi tilkynning frá þingflokksformanni Framsóknarflokksins um mannabreytingar í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa. Magnús Stefánsson tekur sæti Guðna Ágústssonar í samgöngunefnd Alþingis.
Þessi breyting skoðast samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.