136. löggjafarþing — 23. fundur,  11. nóv. 2008.

tilkynning um þingmennskuafsal.

[13:33]
Horfa

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Alþingi barst í morgun tilkynning frá Bjarna Harðarsyni, 8. þm. Suðurkjördæmis, um að hann segði af sér þingmennsku frá og með deginum í dag, 11. nóvember 2008. Við þingmennskuafsal Bjarna Harðarsonar tekur Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Framsóknarflokksins, sæti hans á Alþingi og verður 8. þm. Suðurkjördæmis.

Ég vil af þessu tilefni þakka Bjarna Harðarsyni störf hans á Alþingi og þakka honum góð kynni og óska honum og fjölskyldu hans alls hins besta á komandi árum.