136. löggjafarþing — 26. fundur, 13. nóv. 2008.
stimpilgjald.
151. mál
Herra forseti. Það er sjálfsagt að leita eftir þessum upplýsingum og koma þeim til nefndarinnar. Ef aðrir hv. þingmenn hafa áhuga á að fá þær ætti það ekki að vera neitt vandamál að koma þeim til þeirra líka.