136. löggjafarþing — 32. fundur, 20. nóv. 2008.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, Arnbjörgu Sveinsdóttur, um að Ragnheiður E. Árnadóttir, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, hverfi á ný í fæðingarorlof. 1. varamaður flokksins í kjördæminu, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi, tekur sæti hennar á Alþingi í dag. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.