136. löggjafarþing — 35. fundur, 25. nóv. 2008.
málefni tveggja hælisleitenda.
Virðulegi forseti. Það er fjallað um mál einstaklinga eftir því sem þau koma inn á borð yfirvalda, ekki sem hóps heldur sem einstaklinga. En þetta er vandamál víðar en hér á landi og vandamál í öllum Schengen-ríkjunum og það er alls staðar verið að fjalla um hvernig eigi að taka á þessum málum.