136. löggjafarþing — 47. fundur, 9. des. 2008.
skattlagning kolvetnisvinnslu.
208. mál
Virðulegi forseti. Það sýnir kannski líka að þessi mál hafa verið talsvert rædd hingað til og ekki kemur alveg flatt upp á þingmenn að þessi mál skuli vera á leiðinni hér inn og vísa ég enn og aftur til þeirrar löngu umfjöllunar sem um þetta mál hefur verið og hófst með skýrslunni sem ég ræddi áðan.