136. löggjafarþing — 63. fundur, 19. des. 2008.
lengd þingfundar.
Hæstv. forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Lúðvíks Bergvinssonar um það að ég treysti forseta fullkomlega til að meta hversu lengi þingfundur þarf að standa, með velferð þingmanna og þeirra þingmála í huga sem við þurfum að afgreiða. En ég held að okkur þingmönnum hafi öllum verið það mjög vel ljóst, nokkuð lengi, að hér yrði mikið álag á þessum dögum og við yrðum að vera fram eftir til að ljúka þeim þingmálum sem á þarf að halda.