136. löggjafarþing — 89. fundur, 26. feb. 2009.
tilkynning um úrsögn úr þingflokki.
Forseta Alþingis hefur borist svohljóðandi bréf frá Kristni H. Gunnarssyni, 9. þm. Norðvest., dagsett 25. febrúar 2009:
„Ég tilkynni forseta Alþingis hér með að ég hef með bréfi í dag sagt mig úr þingflokki Frjálslynda flokksins.
Virðingarfyllst,
Kristinn H. Gunnarsson.“