136. löggjafarþing — 108. fundur, 18. mars 2009.
endurskoðun samgönguáætlunar og framkvæmdir á Hellisheiði.
Herra forseti. Ég fagna því að framkvæmdir við Hellisheiðarveg, sem er í Árnessýslu og er kallaður það í daglegu máli en í þingskjölum Suðurlandsvegur, eigi að hefjast á þessu ári og þá langar mig að spyrja: Hvar verður byrjað? Á hvaða kafla þeirrar löngu leiðar á að byrja? Hvar á að hefjast handa og hvernig er röðunin á framkvæmdaþáttum málsins?