136. löggjafarþing — 116. fundur, 25. mars 2009.
greiðslur til líffæragjafa.
259. mál
Hæstv. forseti. Nei, mér er ekki kunnugt um að hæstv. heilbrigðisráðherra hafi breytt reglugerðinni, félags- og tryggingamálanefnd bárust ekki upplýsingar um það.
Hvað varðar vottorð frá sérfræðilækni kemur í raun og veru ekkert fram, hvorki í frumvarpinu né í nefndarálitinu eða öðrum gögnum málsins sem segir að sá hinn sami, sérfræðilæknirinn, þurfi að vera íslenskur eða starfa á íslensku sjúkrahúsi. Það er ekki hægt að álykta að þannig sé í þessu máli.