136. löggjafarþing — 131. fundur, 15. apr. 2009.
stjórnarskipunarlög.
385. mál
Hæstv. forseti. Ég fagna þessari tillögu hv. þm. Lúðvíks Bergvinssonar. Ég tek undir þau sjónarmið hans að mikill bragur sé á því að taka málið til nefndar við þessar aðstæður og eins og staðið er að málinu um þessar mundir. Ég treysti því að forseti verði við þessum tilmælum formanns sérnefndarinnar.