tilkynning um embættismenn alþjóðanefnda.
Borist hafa eftirfarandi tilkynningar um kjör embættismanna alþjóðanefnda:
Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins: Þuríður Backman formaður og Guðbjartur Hannesson varaformaður.
Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins: Lilja Mósesdóttir formaður og Steinunn Valdís Óskarsdóttir varaformaður.
Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA: Árni Þór Sigurðsson formaður og Valgerður Bjarnadóttir varaformaður.
Íslandsdeild NATO-þingsins: Björgvin G. Sigurðsson formaður og Ragnheiður E. Árnadóttir varaformaður.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs: Helgi Hjörvar formaður og Álfheiður Ingadóttir varaformaður.
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins: Ólína Þorvarðardóttir formaður og Lilja Rafney Magnúsdóttir varaformaður.
Íslandsdeild Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu: Róbert Marshall formaður og Björn Valur Gíslason varaformaður.
Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir formaður og Þórunn Sveinbjarnardóttir varaformaður.