137. löggjafarþing — 8. fundur,  28. maí 2009.

aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

38. mál
[16:37]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, í þessu máli hef ég gert grein fyrir því bæði fyrir ríkisstjórnarmyndunina og í þingflokknum að ég hef fyrirvara í þessu máli og er búin að lýsa því að ég mun greiða atkvæði gegn aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Þá skiptir ekki máli hvort hún er lögð fram af framsóknarmönnum og sjálfstæðismönnum eða hvort það er sú tillaga sem liggur hér fyrir. Afstaða mín er skýr.