137. löggjafarþing — 22. fundur, 18. júní 2009.
breyting á ýmsum lögum vegna tilfærslu verkefna innan Stjórnarráðsins.
89. mál
Virðulegi forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að öll áform ríkisstjórnarinnar í þessum breytingum innan Stjórnarráðsins sjá sér ekki stað í þessu frumvarpi sem slíku. En ég bið þá hv. þingmann að bera saman samstarfsáætlun þessarar ríkisstjórnar, verkefnaáætlun út kjörtímabilið með þessu frumvarpi og þá mun hv. þingmaður sjá heildarmyndina á öllu saman.