137. löggjafarþing — 36. fundur, 9. júlí 2009.
endurskipulagning rekstrarhæfra atvinnufyrirtækja.
1. mál
Tveir hv. þingmenn eru á mælendaskrá í þriðja dagskrármáli og forseti hafði hugsað að málin mundu þróast þannig í þingstörfum að næsta mál á dagskrá yrði dagskrármál nr. 10, Gjaldeyrismál. Að því loknu yrði tekið aftur til við að ræða dagskrána eins og hún liggur fyrir og þá farið í 4. mál, ef það upplýsir hv. þingmenn betur um framvinduna.