137. löggjafarþing — 55. fundur, 20. ág. 2009.
ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
136. mál
Frú forseti. Ég þakka mjög góða ræðu. Ég hef eina spurningu til hv. þingmanns og hún er þessi: Telur hv. þingmaður að þessir sveru og góðu fyrirvarar muni halda fyrir breskum og hollenskum dómstólum?