138. löggjafarþing — 32. fundur, 26. nóv. 2009.
ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
76. mál
Hæstv. forseti. Ég greiddi því atkvæði í sumar og stóð að því að leggja fram þá tillögu að farið yrði í að semja upp á nýtt í málinu. Það lýsir auðvitað þeirri skoðun að það eigi að semja í þessu máli. Ég rakti í ræðu minni áðan gallana sem ég tel vera á samningsniðurstöðunni — ég nefni vextina, ég tel það nægilega sterk rök til þess að setjast niður aftur og byrja frá grunni.