138. löggjafarþing — 46. fundur, 16. des. 2009.
hlutafélög og einkahlutafélög.
71. mál
Virðulegi forseti. Hér er á ferðinni mál sem hefur verið á stefnuskrá Framsóknarflokksins í töluverðan tíma. Ég tel þetta afar jákvætt skref og hóflegt vegna þess að atvinnulífinu er gefið ráðrúm til að bregðast við. Og ég hef fulla trú á að atvinnulífið muni grípa strax til þessara úrræða. Ég segi já.