138. löggjafarþing — 132. fundur,  7. júní 2010.

gjaldþrotaskipti o.fl.

510. mál
[20:25]
Horfa

Frsm. allshn. (Róbert Marshall) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Ég get því miður ekki svarað þessum spurningum. Ég kynnti mér einfaldlega ekki þessi mál áður en ég mælti fyrir þessum frumvörpum sem hér um ræðir. Ég er viss um að það er hægt að nálgast þessar upplýsingar á netinu með því að „gúgla“ þær.