138. löggjafarþing — 134. fundur, 9. júní 2010.
úrvinnslugjald.
515. mál
Frú forseti. Ég mæli fyrir breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002, með síðari breytingum. Tillagan er til komin vegna þess að villa var í tollskrárnúmeri í frumvarpinu og tillagan hljóðar svo:
Við b-lið 3. gr. Í stað tollnúmersins „2629.9000“ komi: 2926.9000.
Tillagan er lögð fram af Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.