almennar stjórnmálaumræður.
Gengið er til dagskrár og tekið fyrir eina dagskrármálið, almennar stjórnmálaumræður, sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu.
Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur 10 mínútur í fyrstu umferð, sex mínútur í annarri og sex mínútur í síðustu umferð. Þingmaður utan flokka, Þráinn Bertelsson, talar síðastur í fyrstu umferð og hefur sex mínútur.
Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð og Hreyfingin.
Ræðumenn flokkanna verða:
Fyrir Sjálfstæðisflokk tala í fyrstu umferð Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvest., í annarri umferð Einar K. Guðfinnsson, 5. þm. Norðvest., en í þeirri þriðju Unnur Brá Konráðsdóttir, 6. þm. Suðurk.
Ræðumenn Samfylkingarinnar eru: Þórunn Sveinbjarnardóttir, 7. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 4. þm. Reykv. s., í annarri, en í þriðju umferð Róbert Marshall, 8. þm. Suðurk.
Fyrir Framsóknarflokk talar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, Eygló Harðardóttir, 7. þm. Suðurk., í annarri, en í þriðju umferð Gunnar Bragi Sveinsson, 4. þm. Norðvest.
Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala í fyrstu umferð Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í annarri Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þm. Norðvest., en Margrét Pétursdóttir, 3. þm. Suðvest., í þriðju umferð.
Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurk., og í annarri umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykv. s.
Ræðumaður utan flokka, Þráinn Bertelsson, 9. þm. Reykv. n., talar í fyrstu umferð.