138. löggjafarþing — 144. fundur,  16. júní 2010.

umboðsmaður skuldara.

562. mál
[16:55]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við ræðum hér eitt af þeim málum sem eru ætluð til þess að bjarga þeim heimilum sem eru hvað verst sett. Þar sem fallist hefur verið á að geyma þessi mál til 24. júní þannig að hægt sé að vinna þau betur og hafa samband við þá sem framkvæma þau þannig að framkvæmdin verði eins lipur og hægt er greiði ég þessu atkvæði með gleði.