138. löggjafarþing — 148. fundur,  24. júní 2010.

frestun á fundum Alþingis.

685. mál
[16:58]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis skv. 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan er svohljóðandi:

Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 24. júní 2010 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 2. september 2010.

Tillagan skýrir sig sjálf.