138. löggjafarþing — 159. fundur, 13. sept. 2010.
skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
705. mál
Forseti vil geta þess vegna fyrirspurna um málsmeðferð þegar um er að ræða þingmál sem þetta, skýrslu með þingsályktunartillögu í lokin, að forseti getur ávallt frestað umræðunni og það er unnt að skoða málið í nefnd þó að málinu sé ekki vísað til nefndar.