138. löggjafarþing — 163. fundur,  20. sept. 2010.

málshöfðun gegn ráðherrum.

706. mál
[11:07]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Jú, við eigum að gera þær kröfur að hér séu áætlanir og viðbragðsáætlanir við erfiðum málum sem ríkið stendur frammi fyrir. Reyndar er mér kunnugt um að slík áætlun hafi verið til og sé til varðandi þennan dóm sem er nýfallinn.