138. löggjafarþing — 167. fundur, 27. sept. 2010.
málshöfðun gegn ráðherrum.
706. mál
Frú forseti. Það er alveg hárrétt hjá hv. þm. Birgi Ármannssyni að þingmannanefndin hafði áhyggjur. Það var ábyrgðarmikið hlutverk sem við fengum og þess vegna köfuðum við djúpt í þetta mál, veltum öllum steinum við og unnum þetta með þessum hætti.
Hvað verklagið varðar að öðru leyti, þá fórum við í það á fyrstu mánuðum starfsemi nefndarinnar að kafa ærlega í þetta. Eitthvað er til skriflegt en megninu var lýst fyrir okkur munnlega af sérfræðingum á fundum þeirra með nefndinni.