139. löggjafarþing — 4. fundur,  5. okt. 2010.

afsögn 3. varaforseta og nefndarmanna í Þingvallanefnd.

[20:06]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseta hafa borist þrjú bréf, dagsett í dag. Hið fyrsta er frá Þuríði Backman, 5. þm. Norðaust., sem segir af sér sem aðalmaður í Þingvallanefnd. Annað bréfið er frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, 6. þm. Norðvest., sem segir af sér sem varamaður í Þingvallanefnd. Og þriðja bréfið er frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, 4. þm. Reykv. s., sem segir af sér sem þriðji varaforseti Alþingis.