139. löggjafarþing — 16. fundur, 20. okt. 2010.
tilkynning um embættismenn fastanefnda.
Borist hafa eftirfarandi tilkynningar um kosningu embættismanna fastanefnda:
Á fundi menntamálanefndar í gær var Skúli Helgason kjörinn formaður og Lilja Mósesdóttir varaformaður.
Á fundi umhverfisnefndar í gær var Mörður Árnason kjörinn formaður og Álfheiður Ingadóttir varaformaður.
Á fundi heilbrigðisnefndar í morgun var Jónína Rós Guðmundsdóttir kjörin varaformaður.