139. löggjafarþing — 22. fundur,  8. nóv. 2010.

heimsókn barna úr Hörðuvallaskóla.

[15:02]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Áður en gengið er til dagskrár vill forseti geta þess að í hádeginu í dag komu í þinghúsið 63 átta ára nemendur úr Hörðuvallaskóla og afhentu forseta póstkort til allra 63 þingmanna í tilefni af alþjóðlegri athafnaviku. Við alþingismenn þökkum þessum áhugasömu nemendum fyrir einlæg og skýr skilaboð til þingmanna.