139. löggjafarþing — 41. fundur, 30. nóv. 2010.
tekjuskattur.
300. mál
Forseti. Varðandi undirbúninginn og niðurstöðuna fyrir því að leggja frumvarpið fram með þessum hætti þá varð niðurstaða þeirra sem best til þekkja að taka svona á þessu og væri þá ný ákvörðun í sjálfu sér á borði efnahags- og skattanefndar að taka ákvörðun sem varðar þá þætti sem þingmaðurinn fór yfir í andsvari sínu og ég treysti hv. efnahags- og skattanefnd vel til að gera það með málefnalegum hætti.