139. löggjafarþing — 93. fundur,  15. mars 2011.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 80/2008 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

133. mál
[22:56]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2008, um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn um fjármálaþjónustu. Utanríkismálanefnd hefur fjallað um þetta mál og leitaði m.a. álits viðskiptanefndar. Álit viðskiptanefndar fylgir áliti utanríkismálanefndar.

Markmið þessarar reglugerðar er að setja skilmála sem góðar reikningsskilavenjur þriðju ríkja þurfa að uppfylla til að vera vegnar að jöfnu við alþjóðlega reikningsskilastaðla sem Evrópusambandið samþykkir.

Innleiðing þessarar tilskipunar kallar á lagabreytingar hér á landi og mun fyrirhugað frumvarp hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra um breytingar á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, með síðari breytingum, að hluta til fjalla um það efni. Málið er að því leytinu tengt tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2010, sem er 199. mál á yfirstandandi þingi. Fyrirhugað er að leggja frumvarpið fram á yfirstandandi þingi en það hefur tvívegis áður verið lagt fram en ekki hlotið afgreiðslu. Eftir framlagningu mun það að líkindum koma til meðferðar viðskiptanefndar.

Utanríkismálanefnd leggur til að þessi tillaga verði samþykkt.

Birgitta Jónsdóttir og Valgerður Bjarnadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Undir nefndarálitið rita Árni Þór Sigurðsson, formaður og framsögumaður, Álfheiður Ingadóttir, Bjarni Benediktsson, Helgi Hjörvar, Ólöf Nordal, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir.