139. löggjafarþing — 119. fundur,  5. maí 2011.

íslenskur ríkisborgararéttur.

755. mál
[21:39]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952, með síðari breytingum. Í frumvarpinu eru meðal annars lagðar til þrenns konar breytingar sem fyrst og fremst snúa að því að lagfæra agnúa sem fram hafa komið við framkvæmd laganna.

Í fyrsta lagi eru lagðar til minni háttar breytingar á ákvæðum í 8. gr. laganna er varða búsetu hér á landi og búsetuleyfi.

Í öðru lagi eru lagðar til breytingar á 6. tölulið 9. gr. þar sem eru ákvæði um heimild til að veita íslenskan ríkisborgararétt ef umsækjandi hefur sætt sektum eða fangelsisrefsingu.

Í þriðja lagi er lagt til að tekið verði inn í lögin ákvæði sem var til bráðabirgða í fjögur ár, á árunum 2003–2007, um heimild til handa þeim sem misst hafa íslenskan ríkisborgararétt að fá hann endurveittan.

Ég vil gera nánari grein fyrir þessum breytingum. Í 1. gr. frumvarpsins eru lagðar til þrenns konar breytingar á 8. gr. laganna. Í 2. tölulið 1. mgr. 8. gr. laganna er að finna það skilyrði fyrir íslenskum ríkisborgararétti þegar umsækjandi er í hjúskap með íslenskum ríkisborgara að umsækjandi hafi verið búsettur hér á landi í þrjú ár frá giftingu enda hafi hinn íslenski maki haft íslenskan ríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár. Í frumvarpi þessu er lagt til að við ákvæðið verði bætt að umsækjandi hafi á þeim tíma verið samvistum við maka sinn. Er lagt til að kveðið verði skýrt á um þetta skilyrði í lögum sem er í samræmi við þá túlkun sem verið hefur á ákvæðinu í framkvæmd.

Þá er lögð til lítils háttar breyting á 3. tölulið 1. mgr. 8. gr. þar sem lagt er til að tekin verði út orðin „og bæði eru ógift“ þar sem sambúð verður ekki skráð í dag í Þjóðskrá nema uppfyllt séu sömu lagaskilyrði og þegar fólk gengur í hjúskap og orðalag ákvæðisins eins og það er nú á ekki lengur við.

Í 3. mgr. 8. gr. laganna er tekið fram að umsækjandi um íslenskan ríkisborgararétt skuli uppfylla þau skilyrði sem gerð eru í útlendingalögum fyrir búsetuleyfi útgefnu af Útlendingastofnun og að hann skuli jafnframt hafa slíkt leyfi þegar umsókn er lögð fram nema hann sé undanþeginn skyldu til að hafa dvalarleyfi hér á landi. Ákvæðið hefur verið túlkað á þann veg að allir umsækjendur verði að uppfylla skilyrði sem sett eru í útlendingalögum fyrir útgáfu búsetuleyfis, líka þeir sem eru undanþegnir því skilyrði að hafa dvalarleyfi á Íslandi. Er hér einkum um að ræða norræna ríkisborgaraútlendinga sem öðluðust íslenskan ríkisborgararétt við fæðingu en hafa misst hann eða afsalað sér honum, þá sem eiga íslenskan ríkisborgara að öðru foreldri og útlendinga í hjúskap eða skráðir í sambúð með íslenskum ríkisborgara.

Þar sem lög um íslenskan ríkisborgararétt gera í sumum tilvikum ráð fyrir skemmri búsetutíma fyrir þá einstaklinga sem undanþegnir eru dvalarleyfi en krafist er vegna búsetuleyfis hefur skapast misræmi milli ákvæða útlendingalaga og laga um íslenskan ríkisborgararétt. Þykir því rétt að kveða skýrt á um að þeir einstaklingar sem ekki þurfa dvalarleyfi hér á landi samkvæmt útlendingalögum þurfi ekki að uppfylla skilyrði fyrir búsetuskilyrði samkvæmt útlendingalögum. Er talið rétt að undanskilja frá kröfunni um skilyrði fyrir búsetuleyfi þá einstaklinga sem ekki þurfa dvalarleyfi hér á landi.

Í 2. gr. frumvarpsins eru lagðar til nokkrar breytingar á 6. tölulið 9. gr. laganna sem lögfest er með lögum nr. 81/2007. Þá er ráðherra veitt heimild til að veita íslenskan ríkisborgararétt að liðnum tilteknum biðtíma, þó svo að umsækjandi hefði hlotið sekt eða verið dæmdur í fangelsi. Í frumvarpi þessu er lagt til að biðtími varðandi sektir sem eru lægri en 50 þús. kr. verði felldur niður en hingað til hafa mjög lágar sektir getað frestað veitingu ríkisborgararéttar um eitt ár. Rök fyrir því eru meðal annars hækkanir sektarrefsinga frá setningu ákvæðisins.

Einnig er lagt til að ráðherra verði heimilað að veita ríkisborgararétt að liðnum biðtíma þrátt fyrir að umsækjandi hafi endurtekið brotið af sér ef samanlögð fjárhæð sekta er lægri en 101 þús. kr.

Í 3. gr. er að lokum lagt til að ný grein bætist við lögin sem er efnislega samhljóða bráðabirgðaákvæði sem sett var í lögin með lögum nr. 9/2003 og var í gildi til 1. júlí 2007. Ákvæðið fjallar um heimild til að endurveita íslenskan ríkisborgararétt þeim sem misst hafa íslenskt ríkisfang sitt við það að fá annað ríkisfang. Nokkur fjöldi manna nýtti þessa heimild á sínum tíma en reynslan hefur sýnt að margir sem hefðu getað nýtt sér bráðabirgðaákvæðið vissu ekki um þennan möguleika. Er því hér lagt til að ákvæðið verði fest í sessi og að þeir sem á sínum tíma misstu íslenskt ríkisfang við að fá annað ríkisfang geti endurheimt íslenskt ríkisfang.

Virðulegi forseti. Ég hef gert grein fyrir helstu atriðum frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjarnefndar og 2. umr.