139. löggjafarþing — 120. fundur, 10. maí 2011.
tilkynning um embættismenn fastanefnda.
Borist hafa eftirfarandi tilkynningar um kosningu embættismanna fastanefnda:
Á fundi menntamálanefndar 9. maí var Þuríður Backman kjörin varaformaður nefndarinnar.
Á fundi samgöngunefndar 9. maí var Björn Valur Gíslason kjörinn formaður nefndarinnar og Sigmundur Ernir Rúnarsson varaformaður.
Á fundi fjárlaganefndar í dag, 10. maí, var Oddný G. Harðardóttir kjörin formaður og Björn Valur Gíslason varaformaður.