139. löggjafarþing — 125. fundur, 17. maí 2011.
göngubrú yfir Markarfljót.
432. mál
Frú forseti. Þar sem ég var fjarstaddur þegar þessi tillaga var lögð fram og er ekki á henni vildi ég bara lýsa því yfir að ég styð hana 100%. Þetta er þarft verk og nauðsynlegt, bæði vegna öryggissjónarmiða eins og fram kom í máli hv. þm. Róberts Marshalls sem og til að auka aðgengi fólks að þessari náttúruperlu.