139. löggjafarþing — 143. fundur,  7. júní 2011.

umræður um dagskrármál.

[19:04]
Horfa

Forseti (Álfheiður Ingadóttir):

Forseti vill upplýsa að samkomulag hafði tekist og ákvörðun verið tekin um að ljúka umræðum klukkan 16.10 í dag í þeim tilgangi að taka til umræðu 18. dagskrármálið. Það er skýringin á því að forseti óskaði eftir að menn féllu frá því að veita andsvar, reyndar fleiri en einn.