139. löggjafarþing — 147. fundur,  9. júní 2011.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar.

555. mál
[19:50]
Horfa

Frsm. allshn. (Róbert Marshall) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breyting á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. Með því er lagt til að ef sóknarpresti eða öðrum presti þjóðkirkjunnar er veitt lausn frá embætti eða leyfi frá störfum eða hann forfallast af öðrum ástæðum geti biskup Íslands falið öðrum presti að gegna embættinu til allt að eins árs í senn. Lagt er til að ákvæðið verði tímabundið og falli úr gildi árið 2015.

Á fundi nefndarinnar kom fram að frumvarpið er liður í viðbrögðum við þeirri hagræðingarkröfu sem þjóðkirkjan stendur frammi fyrir. Frumkvæðið að þessari tillögu hafi komið frá kirkjuþingi sem telur ekki rétt að skipa í embætti sóknarpresta fyrr en ákveðið hafi verið hvernig framtíðarskipan sókna, prestakalla og prófastsdæma verður en sérstaklega er litið til grannprestakalla í þessu sambandi.

Nefndin telur eðlilegt að þessi heimild verði sett tímabundið þar sem fyrir liggur að tillögur um breytingar á prestakallaskipan þurfa að fá umsögn á aðalsafnaðarfundum viðkomandi sókna. Tillögurnar eru síðan bornar upp á héraðsfundi sem sendir þær biskupafundi sem býr málið til kirkjuþings og getur sú málsmeðferð tekið allt að eitt ár, sérstaklega ef tillaga að breytingum kemur fyrst fram á kirkjuþingi.

Allsherjarnefnd leggur til að þetta mál verði samþykkt. Undir nefndarálitið rita auk undirritaðs hv. þm. Birgir Ármannsson og Mörður Árnason, með fyrirvara, og hv. þm. Vigdís Hauksdóttir og Þór Saari.