139. löggjafarþing — 156. fundur, 2. sept. 2011.
framhaldsfundir Alþingis.
Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda föstudaginn 2. september 2011 kl. 10.30.
Gjört á Bessastöðum, 19. ágúst 2011.
Ólafur Ragnar Grímsson.
____________________
Jóhanna Sigurðardóttir.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“
Ég býð hæstv. forseta og hv. alþingismenn velkomna til þingfunda að nýju eftir sumarleyfi.