139. löggjafarþing — 160. fundur, 8. sept. 2011.
kaup Magma á HS Orku.
Virðulegi forseti. Ég held að við komumst ekki mikið lengra í þessu orðaskaki því að þetta eru yfirleitt dálítið brúkaðir frasar sem renna fram af munni hv. þingmanns. (Gripið fram í.) Það væri æskilegt að byggt væri á sterkari gögnum en hér er gert og væri byggt á staðreyndum (Gripið fram í.) og því sem fyrir liggur en ekki á óljósum fréttaflutningi Morgunblaðsins .