139. löggjafarþing — 161. fundur, 12. sept. 2011.
Stjórnarráð Íslands.
674. mál
Virðulegur forseti. Það er stundum sagt um Framsóknarflokkinn að hann sé eins og strætó, menn geti farið upp í hann að framan og úr honum að aftan. Það er alveg ljóst að í þessu máli er hann meira eins og hringekja með mismunandi ásýnd eftir því hvar maður lítur á hann.