framhaldsfundir Alþingis.
„Handhafar valds forseta Íslands samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar, gjöra kunnugt:
Vér höfum ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 16. janúar 2012 kl. 15.
Gjört í Reykjavík, 13. janúar 2012.
Ásta R. Jóhannesdóttir. Jóhanna Sigurðardóttir.
Markús Sigurbjörnsson.
___________________
Jóhanna Sigurðardóttir.
Bréf handhafa valds forseta Íslands um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“
Ég býð hæstv. forseta, hv. alþingismenn svo og starfsmenn Alþingis velkomna til starfa á nýju ári.