140. löggjafarþing — 71. fundur, 13. mars 2012.
netfærsla af nefndarfundi.
Frú forseti. Ég ber það mikla virðingu fyrir stjórnarskrá lýðveldisins Íslands að ég vil að menn fari eftir 14. gr. þar sem segir:
„Alþingi getur kært ráðherra fyrir embættisrekstur þeirra. Landsdómur dæmir þau mál.“
Ég vil að forseti leyfi ekki umræður eða mat á því sem kemur fram í landsdómi.