140. löggjafarþing — 89. fundur,  26. apr. 2012.

umræða um stöðu ESB-viðræðna.

[11:08]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill geta þess að hann hefur ítrekað verið í sambandi við hv. þingmann vegna þessarar óskar hans um lengri sérstaka umræðu um málið og hefur reynt til hins ýtrasta að koma henni á dagskrá. Það hefur því miður ekki tekist. Nú gefst tækifæri í dag undir umræðunni um utanríkismál að taka upp umræðu um Evrópusambandsmálin eins og ljóst er af efni máls.